Fjallahjólanámskeið með Íslandsmeistaranum - Kvöldhópur
06
Jul
08
Jul
10
Jul
13
Jul
Tækninámskeið fyrir byrjendur og áhugamenn í fjallahjólreiðum. Áherslan er á grunnatriði sem allir þurfa að hafa klár áður en lengra er farið í skemmtilegann heim fjallahjólreiða, með öryggi og sjálfstraust sem helstu markmið.
Hópurinn fær nákvæmar útskýringar, leiðbeiningar og sýnikennslu í fjölmörgum atriðum sem koma við sögu í tækniæfingum fyrir fjallahjól.
Öll kennslan fer fram í léttu og skemmtilegu andrúmslofti með svigrúm til aukaatriða sem eru ekki á kennsluskrá, og alltaf stutt í gamanið!
Þjálfari: Ingvar Ómarsson. Margfaldur Íslandsmeistari og atvinnumaður í hjólreiðum
- 4 útiæfingar með tæknikennslu allan tímann
- Fullorðnir og unglingar (16+) sem eru með grunnþekkingu á hjólreiðum
- Allar æfingar byrja kl 18:00 á höfuðborgarsvæðinu og taka uþb. 2 klst
- Nauðsynlegur búnaður er fjallahjól í góðu ásigkomulagi, hjálmur og fatnaður eftir veðri
Hámarksfjöldi 10 manns.
Verð: 14.900 kr.-