Ég hef trú á því að persónuleg þjálfun sé besti valkosturinn fyrir metnaðarfulla einstaklinga sem hafa skýr markmið. Í mínum huga er þjálfun, í hvaða formi sem er, best þegar þjálfari og íþróttamaður eru í persónulegum samskiptum. Þannig geta þeir þróað sínar aðferðir, skipulag á æfingum og markmið í samvinnu.
Hágæða þjálfun fyrir þá sem vilja meira
Það er fátt betra en að vinna með fólki sem ætlar sér að ná langt, komast í sitt besta form og halda áfram að bæta sig, á hvaða hátt sem er. Það sem ég býð upp á er hágæða þjálfun, fyrir fólk sem vill gera meira, og er tilbúið til að bæta við sig þekkingu á eigin æfingaferli og skipulagi í æfingum samhliða öðrum þáttum í lífinu.
Ég keppi mikið í hjólreiðum og hef prufað að vera með einkaþjálfara, æfa með hópum og nú nýlega að þjálfa sjálfan mig. Mér finnst ómetanlegt að hafa reynslu af bæði hlutverki íþróttamannsins, og þjálfarans, þegar koma upp tilvik þar sem mikilvægt er fyrir þjálfarann að leita í reynslu sína til að sjá hlutina með augum íþróttamanns.
Það besta sem ég hef lært af fólki í þjálfunarhlutverki, er byggt á þeirra eigin reynslu, og hvernig hægt er að miðla þeirri reynslu til annarra, til að flýta framför, koma í veg fyrir mistök, og auka líkur á að hámarks árangur náist.
Ég býð upp á nokkra möguleika í þjálfun, sem henta fólki með mismunandi markmið
Upphafsfundur í persónu
Eða í gegn um síma/netspjall. Æfinga og keppnissaga skoðuð og markmið sett samkvæmt ráðgjöf
Keppnisskipulag
Ákveðið í samráði við þjálfara fyrir eða í byrjun keppnistímabils. Keppnum skipt niður í stór eða lítil markmið og raðað skynsamlega á dagatalið
Undirbúningur fyrir keppni
Ótakmörkuð ráðgjöf og undirbúningur fyrir keppnir í öllum greinum, samtöl um taktík og val á búnaði, með möguleika á brautar/leiðarskoðun.
Sérsniðið æfingaplan
Uppfært á 2-4 vikna fresti. Allar æfingar eru hannaðar samkvæmt kröfum og markmiðum settum á upphafsfundi.
Persónuleg samskipti
Aðgengileg samskipti í gegn um síma, netspjall, tölvupóst eða í persónu eftir þörfum. Reglulegir fundir eftir óskum.
Einkakennsla
Möguleiki, með fyrirvara, á einkatímum í tækni á hjólinu, sérstaka tíma eða í sambandi við undirbúning fyrir keppni, td brautarskoðun
Sveigjanleg plön
Möguleiki á breytingum á plani vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna, hvenær sem er
Regluleg eftirfylgni
Vikuleg yfirferð á æfingum þar sem æfingavikan er metin og rætt um árangur í stökum æfingum. Stakir dagar skoðaðir reglulega.
Ég notast við tækni og tölvur í minni þjálfun
Megnið af mínum æfingaaðferðum er byggt á eigin reynslu sem íþróttamaður. Frá því ég byrjaði í keppnishjólreiðum hef ég heillast af því hvernig tæknin getur orðið að góðum notum í æfingaskipulagi.
TrainingPeaks er að mínu mati besti kosturinn í dag, þegar kemur að utanumhaldi á æfingum, skipulagi á framtíðar áformum, og að hafa yfirsýn með árangri og bætingu. Ég nota kerfið fyrir sjálfann mig sem íþróttamann, og fyrir alla sem ég þjálfa.
- Einföld uppsetning með aðstoð þjálfara
- Auðvelt að tengja við Garmin tæki og Strava
- Æfingadagatal sem bæði þú og þjálfarinn þinn hafið aðgang að
- Þægilegt viðmót sem gagnast til að sjá framför í æfingum